Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí dróst saman um 10,2% milli 2018 og 2019. Munaði þar mestu um staði sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður, þar sem fækkunin var 29%. Einnig var 5,2% samdráttur á hótelum og gistiheimilum og 9,2% fækkun á öðrum tegundum gististaða.

Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 656.000 í maí síðastliðnum, en þær voru um 731.000 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 412.000. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 155.000 og um 89.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Gistinóttum á hótelum fækkar um 3%, aukning á höfuðborgarsvæði
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 308.500, sem er 3% fækkun frá sama mánuði árið áður. Þrátt fyrir það fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um 2% en um 57% allra hótelgistinátta voru á því svæði. Gistinóttum fjölgaði einnig á Austurlandi (17%) og Norðurlandi (11%). Á öðrum landssvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum samanborið við maí 2018 og vegur þar þyngst 25% samdráttur á Suðurnesjum og 12% samdráttur á Suðurlandi.

Gistinætur á hótelum
  Maí   Júní-maí  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls317.689308.523-34.313.9844.405.7492
Höfuðborgarsvæði171.446174.75022.591.6362.525.482-3
Suðurnes25.09618.928-25296.186301.7842
Vesturland og Vestfirðir21.92719.114-13203.670251.99024
Norðurland24.18926.92411302.886329.3059
Austurland8.92710.46717107.609107.6320
Suðurland66.10458.340-12811.997889.55610
Þjóðerni
Íslendingar43.65138.028-13425.785432.0081
Erlendir gestir274.038270.495-13.888.1993.973.7412

Herbergjanýting í maí 2019 var 56,1%, sem er lækkun um 2,2 prósentustig frá maí 2018 þegar hún var um 58,3%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 4,3% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í maí var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 67,2%.

Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2018 til maí 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.405.800, sem er 2% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Framboð og nýting hótelherbergja
  Herbergjafjöldi á hótelum í maí Herbergjanýting hótela í maí
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls10.02610.4594,3%58,3%56,1%-2,2
Höfuðborgarsvæði5.0115.0851,5%63,9%67,2%3,3
Suðurnes6276341,1%74,2%55,2%-19,0
Vesturland og Vestfirðir74688018,0%51,9%40,6%-11,3
Norðurland1.1231.2087,6%40,6%42,4%1,8
Austurland4394410,5%36,6%44,8%8,1
Suðurland2.0802.2116,3%56,5%46,8%-9,7

Um 88% gistinátta á hótelum var skráð á erlenda ferðamenn, eða 270.500 sem er 1% færra en í maí 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (84.500), þar á eftir koma Þjóðverjar (29.200) og Bretar (25.500) en gistinætur Íslendinga voru 38.000.

Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 11.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 22.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þetta eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni