FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. JÚLÍ 2009


Gistinætur á hótelum í maí eru svipaðar milli ára
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 117.000 en voru 117.900 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi og á Norðurlandi, en í öðrum landshlutum fækkaði þeim milli ára.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi úr 12.400 í 13.900 eða um rúm 12%  miðað við maí 2008. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 9.000 í 9.800 eða um tæp 9% miðað við sama mánuð í fyrra.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 10.400 í 7.900 eða um 24%. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 4.700 í 4.300 eða um rúm 9%. Á Höfuðborgarsvæðinu var fjöldi gistinátta svipaður milli ára eða rúm 81.000.

Gistinóttum á hótelum fækkaði í maí um tæp 2% milli ára. Munaði þar mestu um Íslendinga því að fjöldi gistinátta erlendra ríkisborgara var svipaður.

Gistinóttum á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins fækkaði um tæp 2% milli ára
Fjöldi gistinátta fyrstu fimm mánuði ársins voru 420.500 en voru 428.700 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi um 8% og á Norðurlandi um 4%. Á öllum öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum, mest á Austurlandi um 21%. Fyrstu fimm mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 14% á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um 3% miðað við sama tímabil árið 2008.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.