Heildarfjöldi greiddra gistinátta í júní dróst saman um 2% milli 2018 og 2019. Þótt fjöldi gistinátta á hótelum og gistiheimilum í júní breytist lítið milli ára vekur athygli að á hótelum fækkaði þeim um 5% meðan þeim fjölgaði um 14% á gistiheimilum. Á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður fækkaði gistinóttum um 10,5% og 1,6% fækkun var á öðrum tegundum gististaða.

Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 1.124.000 í júní síðastliðnum, en þær voru um 1.148.000 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 591.500, þar af 397.600 á hótelum og 193.900 á gistiheimilum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 363.000 og um 170.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Gistinóttum á hótelum fækkar um 5%
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 397.600, sem er 5% fækkun frá sama mánuði árið áður. Gistinóttum á hótelum fjölgaði á Austurlandi (10%) og Norðurlandi (8%) en fækkaði í öðrum landshlutum. Um 52% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 207.800 og er það 6% samdráttur frá fyrra ári.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2018 til júní 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.384.200, sem er 1% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum
  Júní   Júlí-júní  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls419.173397.622-54.337.2764.384.1981
Höfuðborgarsvæði221.300207.814-62.595.1172.511.996-3
Suðurnes28.46025.410-11298.805298.7340
Vesturland og Vestfirðir29.56625.338-14207.602247.76219
Norðurland38.15441.2708304.643332.4219
Austurland14.37215.75110105.754109.0113
Suðurland87.32182.039-6825.355884.2747
Þjóðerni
Íslendingar42.55135.756-16444.221425.213-4
Erlendir gestir376.622361.866-43.893.0553.958.9852

Frá júní 2014 hefur framboð hótelherbergja á landinu farið úr 6.100 herbergjum upp í 10.400, sem er aukning um 70,3%. Í júní 2009 voru herbergin 4.600 og hafa því aukist um 125,5% síðan þá.

Herbergjanýting í júní 2019 var 72,1% sem er lækkun um 5,4 prósentustig frá júní 2018 þegar hún var um 77,5%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 3,1% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í júní var best á Suðurnesjum, eða 79,8%.

Framboð og nýting hótelherbergja í júní
  Herbergjafjöldi á hótelum í júní Herbergjanýting hótela í júní
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls10.12210.4383,1%77,5%72,1%-5,4
Höfuðborgarsvæði5.0285.0941,3%83,2%78,0%-5,3
Suðurnes6276341,1%83,3%79,8%-3,5
Vesturland og Vestfirðir74684413,1%71,3%56,0%-15,3
Norðurland1.1231.2087,6%65,1%63,7%-1,4
Austurland4394410,5%60,2%66,4%6,2
Suðurland2.1592.2172,7%74,6%68,3%-6,3

Um 91% gistinátta á hótelum var skráð á erlenda ferðamenn, eða 361.900 sem er 4% færra en í júní 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (119.400), þar á eftir koma Þjóðverjar (43.600) og Bretar (28.200) en gistinætur Íslendinga voru 35.600.

Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 14.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 28.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þetta eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni