FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. ÁGÚST 2010


Gistinóttum fjölgar um 5% í júní   
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 157.000 en voru 149.000 í sama mánuði árið 2009.

Fjölgun gistinátta í júní nær til allra landsvæða. Mest varð fjölgun gistinátta á Vesturlandi og Vestfjörðum um 13%, úr 6.500 í 7.300. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum um 12% milli ára og fóru úr 5.800 í 6.500. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði um 7% og úr 20.000 í 21.300 samanborið við júní 2009. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, voru 14.600 en fóru í 15.500. Á Austurlandi jukust gistinætur úr 7.500 í 7.900 eða um 5% samanborið við júní 2009. Á Höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum einnig úr  94.400 í 98.400 eða um 4% miðað við sama tímabil 2009.

Fjölgun gistinátta á hótelum í júní nær eingöngu til erlendra gesta, en gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði um 20% samanborið við júní 2009 á meðan gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 10%.


Gistinóttum á hótelum fyrstu sex mánuði ársins fjölgar um tæpt 1% milli ára
Gistinætur fyrstu sex mánuði ársins voru 573.400 en voru 570.400 á sama tímabili 2009.  Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi um 6%, á Norðurlandi um 5% og um 4% á Austurlandi samanborið við sama tímabil 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára eða fjöldinn er svipaður. Fækkun á Vesturlandi og Vestfjörðum yfir þetta tímabil var 2% og innan við 1% á Suðurnesjum og á Höfuðborgarsvæðinu.

Fyrstu sex mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 7% á meðan gistinóttum  útlendinga fjölgar um 3% miðað við sama tímabil 2009.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.