FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. ÁGÚST 2009


Gistinóttum á hótelum í júní fækkaði um 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 147.900 en voru 155.800 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 14.700 í 12.300 eða 17%. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 8.500 í 7.500 eða rúm 12%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um tæp 6%, úr 99.400 í 93.700. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaður milli ára eða um 14.600.

Suðurland er eini landshlutinn þar sem fjölgun gistinátta varð á milli ára, þar fóru gistinætur úr 18.500 í 19.800 sem er um 7% aukning.

Gistinóttum á hótelum í júní fækkaði um tæp 11% milli ára meðal Íslendinga og um 4% meðal erlendra ríkisborgara.

 

Gistinóttum á hótelum fyrstu sex mánuði ársins fækkaði um tæp 3% milli ára
Gistinætur fyrstu sex mánuði ársins voru 568.300 en voru 584.300 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi um 8% og á Norðurlandi um 3%. Á öllum öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum, mest á Austurlandi um 18%. Fyrstu sex mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 13% en gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um 1% miðað við sama tímabil árið 2008.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.