FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. ÁGÚST 2017

Gistinætur á hótelum í júlí voru 466.100 sem er 2% aukning miðað við júlí 2016. Um 53% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 246.600, sem er 1% aukning miðað við júlí 2016. Gistinætur á Suðurnesjum voru 35.200, sem er 63% aukning frá fyrra ári, en einnig var 6% aukning á Suðurlandi, þar sem gistinætur voru 92.400. Gistinætur á Vesturlandi og Vestfjörðum voru 26.700 sem er fækkun um 14%, en einnig fækkaði gistinóttum um 9% á Norðurlandi og 7% á Austurlandi borið saman við júlí 2016.

Flestar gistinætur í júlí áttu Bandaríkjamenn með 126.600, svo Þjóðverjar með 74.400 og Bretar með 34.700, en íslenskar gistinætur í júlí voru 37.700. Gistinætur erlendra gesta voru 92% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum, en þeim fjölgaði um 1% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 13%.

Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2016 til júlí 2017 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum 4.189.000 sem er 24% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

90% nýting herbergja á hótelum í júlí 2017
Herbergjanýting í júlí 2017 var 89,7%, sem er lækkun um tvö prósentustig frá júlí 2016 þegar hún var 91,7%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,4%, mælt í fjölda herbergja. Nýtingin var best á höfuðborgarsvæðinu, eða um 92,7%.

Gistinætur á hótelum
  Júlí   Ágúst–júlí  
  2016 2017 % 2015–2016 2016–2017 %
             
Alls 455.514 466.075 2 3.365.582 4.188.783 24
Höfuðborgarsvæði 244.777 246.615 1 2.178.631 2.584.041 19
Suðurnes 21.573 35.230 63 160.334 283.167 77
Vesturland og Vestfirðir 31.135 26.739 -14 150.678 177.639 18
Norðurland 48.331 44.054 -9 238.816 291.019 22
Austurland 22.751 21.067 -7 93.484 107.776 15
Suðurland 86.947 92.370 6 543.639 745.141 37
             
Íslendingar 33.494 37.746 13 361.562 434.212 20
Erlendir gestir 422.020 428.329 1 3.004.020 3.754.571 25

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2017 eru bráðabirgðatölur. Um þessar mundir fer fram vinna við endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðernum ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta, en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna. Stefnt er á að ljúka þessari vinnu fyrir útgáfu endanlegra talna fyrir gistinætur á öllum tegundum gististaða fyrir árið 2017.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.