FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. SEPTEMBER 2006


Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgaði um 11% milli ára
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 175.900 en voru 158.000 í sama mánuði árið 2005, sem er rúmlega 11% aukning.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Aukningin var hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinætur fóru úr 17.000 í 19.500 milli ára, 15% aukning.  Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin rúmum 13% er gistinóttum fjölgaði úr 92.400 í 104.800.  Á Norðurlandi fór gistináttafjöldinn úr 18.400 í 19.900 sem telst rúmlega 8% aukning milli ára.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um tæplega sexhundruð, úr 9.200 í 9.800, 6% aukning.  Fjölgunin á Suðurlandi nam rúmum 4% og fóru gistinæturnar úr 21.000 í 21.900 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í júlí árið 2006 má bæði rekja til Íslendinga og útlendinga.  En gistinóttum útlendinga fjölgaði um 12% og Íslendinga um 5%.

Gistirými á hótelum í júlímánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.773 í 3.886, 3% aukning og fjöldi rúma úr 7.659 í 7.900, 3% aukning.

Gistinóttum á hótelum janúar - júlí fjölgaði um 10%
Á fyrstu sjö mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 10% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 600.600 í 661.500 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Hlutfallslega varð aukningin mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 53.700 í 66.000 milli ára, 23% aukning.  Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 10%, Austurlandi 10%, Norðurlandi 8% og á Suðurlandi 4%.  Fjölgun gistinátta á þessu tímabili má bæði rekja til Íslendinga og útlendinga en þeim fjölgaði í báðum tilvikum um 10%.  


Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir.

Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.