FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MARS 2009


Gistinóttum á hótelum í janúar fækkaði um rúm 6% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.800 en voru 58.500 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistóttum fjölgaði um 6% miðað við janúar 2008. Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Austurlandi úr 1.400 í 650 eða um 54%. Gistinætur á Suðurlandi voru 2.700 í janúar og fækkaði um 10% frá fyrra ári, á Norðurlandi voru 1.700 gistinætur sem er 6% minna en í janúar 2008. Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði einnig 6%, voru 45.400 samanborið við 48.200 í janúar 2008.

Fækkun gistinátta á hótelum í janúar má eingöngu rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fækkaði um 33%, en gistinóttum útlendinga fjölgaði um 6%  milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.