FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MARS 2008


Gistinóttum á hótelum í janúar fjölgaði um rúm 12% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 57.200 en voru 51.000 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 12% milli ára og er fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 39.400 í 47.700 eða um 21%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 8% á milli ára, úr 1.700 í 1.800. Á Suðurlandi  fjölgaði gistinóttum um tæp 4% frá fyrra ári, úr 2.800 í 3.000.
 
Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í janúar hinsvegar um tæp 61% á milli ára, eða úr 1.800 í 700. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 25% milli ára, úr 5.200 í 3.900.
 
Fjölgun gistinátta á hótelum í janúar má aðallega rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22%  en gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúm 8% milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2008 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.