FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. APRÍL 2008


Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um rúm 17% milli ára
Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 77.000 en voru 65.600 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 17% milli ára og er fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 47.600 í 61.000 eða um 28%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 6% á milli ára, úr 3.300 í 3.500.

Á öðrum landssvæðum varð fækkun gistinátta í febrúar. Mest varð fækkunin á Suðurlandi um 22% og fækkaði gistinóttum úr 7.200 í 5.700 milli ára. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í febrúar um 21% á milli ára, eða úr 1.900 í 1.500. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam fækkun gistinátta  tæpum 5% milli ára, úr 5.400 í 5.200.
 
Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar má aðallega rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 25%  en gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúm 14% milli ára.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2008 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.