FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. APRÍL 2006


Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 5,5% milli ára
Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 56.000 en voru 53.000 í sama mánuði árið 2005, sem er 5,5% aukning.  Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.300 í 5.600 milli ára (68%).  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 200, úr 1.000 í 1.200 (21%).   Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 1,5%, en gistináttafjöldinn fór úr 41.200 í 41.800.  Aukningin á Suðurlandi var sú sama, 1,5% en þar fóru gistinæturnar úr 4.500 í 4.600 milli ára.  Norðurland var eina landsvæðið þar sem samdráttur átti sér stað, en gistinóttum fækkaði þar um 6,4%, úr 3.100 í 2.900.   

Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar árið 2006 má bæði rekja til Íslendinga (13,6%) og útlendinga (2%).


Fyrstu tvo mánuði ársins fjölgaði gistinóttum um 8,5% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 89.000 í 97.000 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum nema Suðurlandi.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.