FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. JANÚAR 2018

Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 299.400, sem er 3% fjölgun frá sama mánuði árið áður. Um 72% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 214.900, sem er nánast óbreytt frá fyrra ári. Nokkur fjölgun varð á gistinóttum frá desember fyrra árs á Suðurnesjum (27%) og Norðurlandi (18%).

Um 91% gistinátta voru skráðar á erlenda ferðamenn, en erlendum gistinóttum fjölgaði um 4% frá desember í fyrra meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 3%. Bretar gistu flestar nætur (85.800), síðan Bandaríkjamenn (73.500) og Kínverjar (26.400), en gistinætur Íslendinga voru 27.800.

58% nýting herbergja á hótelum í desember 2017
Herbergjanýting í desember 2017 var 58,0%, sem er lækkun um 5,4 prósentustig frá desember 2016 þegar hún var 63,5%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,8% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í desember var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 76,1%.

10% fjölgun gistinátta á hótelum milli 2016 og 2017
Heildarfjöldi gistinátta á hótelum árið 2017 var um 4.260.000 sem er 10% aukning frá árinu 2016. Meðalnýting herbergja á hótelum árið 2017 var 72,1%, sem er hækkun um 0,9% frá 2016. Meðalnýting á höfuðborgarsvæðinu árið 2017 var 84,2%.

Nefna má að heildarfjöldi gistinátta á Suðurnesjum árið 2017 var 301.000 og jókst milli ára um 45%. Meðalnýting yfir árið var 74,5%, sem er 1,8% hærri nýting en 2016. Á sama tíma jókst framboð gistirýmis á Suðurnesjum um 29,7%.

Áætlun á heildarfjölda gistinátta fyrir allar tegundir gististaða 2017
Hagstofan áætlar að heildarfjöldi gistinátta á öllum tegundum gististaða hafi árið 2017 verið um 10.500.000, þar af hafi gistinætur á stöðum sem skipta við Airbnb verið um 1.700.000. Af þeim 8.800.000 gistinóttum sem eru áætlaðar af gististöðum skráðum í gistináttagrunn Hagstofunnar má ætla að gistinætur erlendra gesta hafi verið um 7.700.000 og gistinætur Íslendinga um 1.100.000.

Byggt á gögnum úr virðisaukaskattsskilum er áætlað að tekjur þeirra sem leigja út gistirými í gegnum Airbnb hafi verið 14,7 milljarðar árið 2017 samanborið við 11,8 milljarða árið 2016. Til samanburðar var velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í rekstri gististaða tæplega 95 milljarðar á 12 mánaða tímabili frá nóvember 2016 til október 2017. Velta af útleigu í gegnum Airbnb er að hluta til meðtalin í virðisaukaskattskyldri veltu gististaða.

Þar sem eftir er að ganga frá mati á gistinóttum fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel eru þessar tölur ekki endanlegar og er gert ráð fyrir að þær verði uppfærðar í birtingu um gistinætur ársins 2017 í mars 2018.

Gistinætur á hótelum
  Desember   Janúar–desember  
  2016 2017 % 2016 2017 %
             
Alls 290.365 299.393 3 3.866.813 4.259.599 10
Höfuðborgarsvæði 214.342 214.858 0 2.447.410 2.598.661 6
Suðurnes 17.886 22.734 27 207.371 301.010 45
Vesturland og Vestfirðir 5.304 4.978 -6 173.264 190.089 10
Norðurland 6.873 8.107 18 284.050 297.609 5
Austurland 1.690 1.842 9 108.337 108.337 0
Suðurland 44.270 46.874 6 646.381 763.893 18
             
Íslendingar 28.554 27.759 -3 403.360 427.051 6
Erlendir gestir 261.811 271.634 4 3.463.453 3.832.548 11

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2017 eru bráðabirgðatölur. Um þessar mundir fer fram vinna við endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðerni ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu fyrir útgáfu endanlegra talna fyrir gistinætur á öllum tegundum gististaða fyrir árið 2017.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.