FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. FEBRÚAR 2010


Gistinóttum á hótelum í desember fækkar um rúm 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 55.700 en voru 58.800 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi.

Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um 21% miðað við desember 2008, úr 560 í 450. Gistinætur á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 600 og fækkaði um 19% milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu voru 46.000 gistinætur á hótelum í desember sem er fækkun um tæp 9% frá desember 2008. Á Suðurnesjum fækkaði gistinóttum einnig lítillega, voru 2.800  í desember sem er fækkun um tæp 4% frá fyrra ári.

Gistinætur á hótelum á Suðurlandi voru rúmlega 4.000 í desember og fjölgaði um tæp 44% frá desember 2008. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum í desember einnig, úr 1.500 í 1.800 eða um tæpt 21%
 
Gistinóttum erlendra ríkisborgara fækkar um tæp 7% frá desember 2008 á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgar um 2% .


 

Gistinóttum á hótelum fyrir árið 2009 fækkar um 1% milli ára
Gistinætur á hótelum árið 2009 voru 1.333.200 og fækkar lítillega frá árinu 2008 þegar gistinætur voru 1.339.900. Á flestum landsvæðum fækkar gistinóttum á milli ára eða standa í stað. Hlutfallslega fækkar gistinóttum mest á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða en fjölgar mest á Norðurlandi og Suðurlandi.

Gistinóttum Íslendinga fækkar um 10% frá árinu 2008 á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um rúm 2%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.