Gistinóttum í apríl fækkaði um 6% frá fyrra ári
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í apríl dróst saman um 6,0% milli 2018 og 2019. Munar þar mest um staði sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður, þar sem fækkunin var 18%. Einnig var 3,7% samdráttur á hótelum og gistiheimilum og 2,5% fækkun á öðrum tegundum gististaða.
Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 504.000 í apríl síðastliðnum, en þær voru um 536.000 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 336.000. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 87.000 og um 80.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.
Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 7.000, og um 25.000 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. Áætlaðar tölur um fjölda gistinátta, utan hefðbundinnar gistináttaskráningar, eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af frekari upplýsingum um framboð og nýtingu staða sem miðla gistingu gegnum Airbnb og veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.
14% fækkun á hótelum á höfuðborgarsvæðinu en 9,5% fjölgun á landsbyggðinni
Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 265.400, sem er 5% fækkun frá sama mánuði árið áður. Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 25.100 (-14,3%), en fjölgaði í öllum öðrum landshlutum. Fjölgunin á landsbyggðinni nam um 10.000 gistinóttum (9,5%) sem dreifðust tiltölulega jafnt milli allra landshluta. Um 56% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 149.900.
Á tólf mánaða tímabili, frá maí 2018 til apríl 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.415.000, sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.
Gistinætur á hótelum | ||||||
Apríl | Maí-apríl | |||||
2018 | 2019 | % | 2017-2018 | 2018-2019 | % | |
Alls | 280.446 | 265.375 | -5 | 4.300.747 | 4.414.915 | 3 |
Höfuðborgarsvæði | 174.993 | 149.894 | -14 | 2.596.595 | 2.522.178 | -3 |
Suðurnes | 18.624 | 20.656 | 11 | 293.393 | 307.952 | 5 |
Vesturland og Vestfirðir | 11.529 | 13.892 | 20 | 197.080 | 254.803 | 29 |
Norðurland | 19.549 | 20.916 | 7 | 307.074 | 326.570 | 6 |
Austurland | 4.099 | 6.443 | 57 | 108.191 | 106.092 | -2 |
Suðurland | 51.652 | 53.574 | 4 | 798.414 | 897.320 | 12 |
Þjóðerni | ||||||
Íslendingar | 45.359 | 36.364 | -20 | 420.640 | 437.631 | 4 |
Erlendir gestir | 235.087 | 229.011 | -3 | 3.880.107 | 3.977.284 | 3 |
Herbergjanýting í apríl 2019 var 48,6%, sem er lækkun um 5,7 prósentustig frá apríl 2018 þegar hún var um 54,4%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,6% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í apríl var best á Suðurnesjum, eða 58,9%.
Framboð og nýting hótelherbergja | ||||||
Herbergjafjöldi á hótelum í apríl | Herbergjanýting hótela í apríl | |||||
2018 | 2019 | % | 2018 | 2019 | prst | |
Alls | 9.718 | 10.266 | 5,6% | 54,4% | 48,6% | -5,7 |
Höfuðborgarsvæði | 5.014 | 5.085 | 1,4% | 66,1% | 56,5% | -9,6 |
Suðurnes | 631 | 634 | 0,5% | 56,6% | 58,9% | 2,3 |
Vesturland og Vestfirðir | 632 | 777 | 22,9% | 33,9% | 33,5% | -0,5 |
Norðurland | 1.010 | 1.164 | 15,2% | 37,0% | 35,6% | -1,4 |
Austurland | 349 | 441 | 26,4% | 22,0% | 28,0% | 6,0 |
Suðurland | 2.082 | 2.165 | 4,0% | 45,6% | 43,9% | -1,6 |
Um 86% gistinátta á hótelum var skráð á erlenda ferðamenn, eða 229.000 sem er 2% færra en í apríl 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (66.100), þar á eftir koma Bretar (36.600) og Þjóðverjar (19.700) en gistinætur Íslendinga voru 36.400.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.