FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. OKTÓBER 2011


Gistinóttum fjölgar um 14%   
Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 217.600 samanborið við 190.500 í ágúst 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 86% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í ágúst og fjölgaði gistinóttum þeirra um 12% frá fyrra ári. Gistinóttum íslendinga fjölgaði einnig, voru 30.850 samanborið við 24.150 í ágúst 2010.

Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði á öllum landssvæðum samanborið við ágúst 2010. Á Norðurlandi voru  23.500 gistinætur í ágúst sem eru um 21% aukning frá fyrra ári. Á Suðurnesjum voru 10.150 gistinætur sem er 17% fjölgun samanborið við  ágúst 2010. Á höfðuborgarsvæðinu voru gistinætur 133.600 í ágúst sem er aukning um 15% og á Suðurlandi voru gistinætur 30.000 sem eru 12% fleiri gistinætur en í ágúst 2010. Á Austurlandi voru 11.200 gistinætur í ágúst, fjölgaði um 9% og á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 9.300 sem er 2% aukning samanborið við ágúst 2010.



Gistinóttum á hótelum fyrstu átta mánuði ársins fjölgaði um rúm 12% milli ára
Gistinætur fyrstu átta mánuði ársins voru 1.085.400 en voru 965.900 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum hefur fjölgað milli ára á Suðurnesjum um 18%, á höfuðborgarsvæðinu um 15%, á Norðurlandi um 6%, á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða og á Suðurlandi um 5%.  Á  Austurlandi hefur gistinóttum fjölgað um 4% frá fyrra ári.

Fyrstu átta mánuði ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 11% og gistinóttum Íslendinga um 20% samanborið við fyrra ár.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.