FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. OKTÓBER 2006


Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um tæp 6% milli ára
Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 162.900 en voru 154.100 í sama mánuði árið 2005, sem er 5,7% aukning.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 14.400 í 17.800 milli ára, 23% aukning.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 17%, úr 16.000 í 18.600.  Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 20.800 í 22.400, 7,5% aukning.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 4%, úr 8.800 í 9.100.  Fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu nam tæplega 1% og fóru gistinæturnar úr 94.200 í 95.000 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í ágúst árið 2006 má bæði rekja til Íslendinga (23%) og útlendinga (4%).

Gistirými á hótelum í ágústmánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.773 í 3.953, 5% aukning og fjöldi rúma úr 7.627 í 8.032, 5% aukning.  Fjöldi hótela er sá sami milli ára, 75.

 

Gistinóttum á hótelum janúar - ágúst fjölgaði um 10%
Á fyrstu átta mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 10% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 754.700 í 828.100 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 22%.  Á Norðurlandi nam aukningin 10%, Suðurlandi 10%, Austurlandi 8% og á höfuðborgarsvæðinu 8%.  Fjölgun gistinátta á þessu tímabili má bæði rekja til Íslendinga (12%) og útlendinga (9%).  

 


Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir.

Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.