FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. OKTÓBER 2026

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 3,0% í september samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 561.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 544.000 á sama tíma árið 2025.

Aukning var á fjölda gistinátta í öllum landshlutum þótt litlar breytingar hafi verið á höfuðborgarsvæðinu (0,2%). Mest fjölgaði gistinóttum hlutfallslega á Suðurnesjum eða um 8,6% en einnig var 7,2% fjölgun á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á Norðurlandi var 5,1% aukning og á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um tæplega 6.900 eða 4,5%. Á Austurlandi fjölgaði loks gistinóttum um 1,6%. Á fyrstu níu mánuðum ársins var samanlagður fjöldi gistinátta 0,2% meiri en á sama tíma árið 2025.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru tæplega 513.000, eða 91% af gistinóttum hótela, og var það 3,7% fjölgun frá fyrra ári. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 188 þúsund og fjölgaði þeim um 3,8% á milli ára. Þá fjölgaði gistinóttum Kínverja (53 þúsund) um 40,0%. Aftur á móti fækkaði gistinóttum Þjóðverja (40 þúsund) um 5,9% og Breta (27 þúsund) um 12,9%. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 48.000 sem var 3,5% minna en í september árið 2025.

Framboð hótelherbergja jókst um 2,9% á landinu í september og var aukning í öllum landshlutum að undanskildu Austurlandi (-1,6%). Mest jókst framboð herbergja á Norðurlandi (12,2%) en einnig var 4,8% aukning á Suðurnesjum.1 Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði herbergjum um 2,3%, á Vesturlandi og Vestfjörðum um 1,1% og á Suðurlandi um 0,9%. Alls voru 187 hótel starfandi í september 2026 með 12.818 herbergi og var fjöldinn nokkuð meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls var starfandi 181 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 60 hótel með alls 5.692 herbergi og 55 á Suðurlandi með 3.211 herbergi.

Herbergjanýting dróst saman á landinu í heild um 0,6 prósentustig. Mestur var samdrátturinn á Norðurlandi (-5,3 prósentustig) en einnig dróst nýtingin saman á höfuðborgarsvæðinu (-2,9 prósentustig). Í öðrum landshlutum batnaði þó nýting herbergja og það mest á Vesturlandi og Vestfjörðum eða um 5,1 prósentustig. Aukning var á Austurlandi um 3,5 prósentustig, Suðurlandi um 2,6 prósentustig og Suðurnesjum um 1,4 prósentustig. Í september var mesta nýtingin á Suðurlandi (88,2%) og því næst á Suðurnesjum (82,6%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í september rúmlega 1.039.000. Þetta var 5,4% aukning miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 986.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 718.000 (tæplega 561.000 á hótelum og rúmlega 157.000 á gistiheimilum) en um 321.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í september 2026 eru bráðabirgðatölur.

1 Gögn um framboð hótelherbergja á Norðurlandi vestra í september 2025 eru til skoðunar og gætu tekið breytingum fyrir næstu birtingu þann 26. nóvember. Upplýsingar um fjölda herbergja geta einnig haft áhrif á tilsvarandi tölur um nýtingu herbergja á Norðurlandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.