FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. OKTÓBER 2025

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 6,0% í september 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 544.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 513.000 á sama tíma árið 2024. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum þar sem þær voru nær óbreyttar (-0,2%). Mest var aukningin á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um 15,0% en þá var einnig markverður vöxtur á Austurlandi (8,4%), Norðurlandi (6,8%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (6,8%). Lítill vöxtur var á höfuðborgarsvæðinu eða um 1,6%. Alls fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um tæp fjögur þúsund en samanlagt um tæplega 27 þúsund í öðrum landshlutum, þar af um 20 þúsund á Suðurlandi.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 494.000, eða 91% af gistinóttum hótela, og var það 11,2% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 50.000 sem var 27,8% minna en í september árið 2024. Meginþorri erlendra ferðamanna var af bandarísku bergi brotinn en gistinóttum þeirra fjölgaði lítillega í september eða um 1,2%. Nokkur aukning var á gistinóttum ferðamanna frá Þýskalandi (12,3%), Kína (79,1%) og Bretlandi (17,7%). Á fyrstu níu mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 12,1%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar um 27,4% á sama tíma.

Framboð hótelherbergja jókst um 2,6% á landinu í september. Mest jókst framboð herbergja á Suðurlandi, eða um 12,6%, en í öðrum landshlutum dróst framboðið saman eða stóð í stað. Þannig fækkaði herbergjum á Norðurlandi um 3,4%, á Austurlandi um 2,1% og á Vesturlandi og Vestfjörðum um 1,5%. Á höfuðborgarsvæðinu jókst fjöldinn um 0,4% en stóð í stað á Suðurnesjum. Alls voru 180 hótel starfandi í september 2025 með 12.400 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2024 þegar alls voru starfandi 176 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.564 herbergi og 53 á Suðurlandi með 3.182 herbergi.

Herbergjanýting jókst um 3,1 prósentustig á landinu í heild og var aukning í öllum landshlutum. Mest jókst nýtingin á Norðurlandi (8,8 prósentustig) en þá var einnig nokkur aukning á Austurlandi (6,8 prósentustig). Á Vesturlandi og Vestfjörðum jókst nýtingin um 3,5 prósentustig auk þess sem 3,0 prósentustiga aukning var á Suðurlandi. Á höfuðborgarsvæðinu jókst herbergjanýting um 1,7 prósentustig og á Suðurnesjum var hún lítið breytt (0,4 prósentustiga aukning). Í september var herbergjanýting mest á Suðurlandi (86,0%) og því næst á höfuðborgarsvæðinu (84,4%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í september rúmlega 1.121.000. Þetta var 10,2% aukning miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 1.017.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 704.000 (544.000 á hótelum og 160.000 á gistiheimilum) en tæplega 418.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.). Á fyrstu níu mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur alls 8.467.000 sem var 9,0% meira en á sama tíma árið 2024.

Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur er nú lokið fyrir hótel og gistiheimili og er á lokastigum fyrir aðra gististaði. Stefnt er á að upplýsingar um fjölda gistinátta eftir þjóðerni hjá öðrum gististöðum verði birtar í nóvember ásamt árslokatölfræði fyrir árið 2024. Hafa ber í huga að allar tölur um gistinætur eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum á milli mánaðarlegra birtinga. Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni á öllum gististöðum er ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í september.

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir september 2025.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.