FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. OKTÓBER 2023

Skráðar gistinætur í september voru 1.030.000 sem er um 6% aukning frá september 2022 (970.400). Fjöldi gistinátta á hótelum var 520.900 sem er 6% aukning frá september á fyrra ári.

Gistinætur erlendra ferðamanna í september voru um 82% gistinátta, eða um 843.000, sem er 9% aukning frá fyrra ári (775.400). Gistinætur Íslendinga voru um 187.000 sem er um 4% færra en á fyrra ári (195.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 685.000 og um 345.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Enn fremur er áætlað að fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í september hafi verið um 180.000.

Gistinætur á hótelum í september voru 520.900 eða 6% fleiri en á fyrra ári (491.800). Hótelgisting í september jókst frá fyrra ári í öllum landshlutum, mest á Suðurlandi (15%) og Norðurlandi (11%). Minnst var aukningin á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjöldi gistinátta var 239.000 og jókst um 1,1% frá september 2022.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 435.600, eða 84% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 85.300 (16%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 9,1% en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 7,9%.

Framboð hótelherbergja í september jókst um 0,2% frá september 2022. Á sama tíma jókst herbergjanýting á landinu um 4,1 prósentustig. Nýtingin var hærri en á fyrra ári í öllum landshlutum en mesta aukningin var um 13,1 prósentustig á Suðurnesjum.

Áætlun sem byggir á svörum erlendra ferðamanna úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir september og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 180.000. Auk þess er metið að gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða hafi verið um 13.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 28.000.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands á meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í september 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir september 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.