FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. NÓVEMBER 2023

Skráðar gistinætur í október voru 775.000 sem er um 12% aukning frá október 2022 (694.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 493.200 sem er 5% aukning samanborið við október í fyrra.

Gistinætur erlendra ferðamanna í október voru um 83% gistinátta, eða um 642.000, sem er 14% aukning frá fyrra ári (561.300). Gistinætur Íslendinga voru um 132.000 sem er á pari við fyrra ár. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 586.000 og um 189.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Enn fremur er áætlað að fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í október hafi verið um 120.000.

Gistinætur á hótelum í október voru 493.200 eða 5% fleiri en á fyrra ári (469.900). Hótelgisting í október jókst frá fyrra ári í flestum landshlutum, mest á Austurlandi (27%) og Norðurlandi (25%). Samdráttur var á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur drógust saman um 12% milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 409.700, eða 83% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 83.500 (17%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 8,0% en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 7,7%.

Framboð hótelherbergja í október var á pari við október 2022. Á sama tíma jókst herbergjanýting á landinu um 3,7 prósentustig. Nýtingin var hærri en á fyrra ári í flestum landshlutum en mesta aukningin var um 15,4 prósentustig á Suðurnesjum.

Áætlun sem byggir á svörum erlendra ferðamanna úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir október og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 120.000. Auk þess er metið að gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða hafi verið um 4.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 17.000.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands á meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í október 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir október 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.