FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 18. DESEMBER 2025

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6% í nóvember 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar rúmlega 365.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 391.000 á sama tíma árið 2024. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum og hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 31,1%. Þá var einnig umtalsverð fækkun á höfuðborgarsvæðinu (-8,9%), Vesturlandi og Vestfjörðum (-7,9%) og Norðurlandi (-7,1%). Á Suðurlandi fækkaði gistinóttum um 1,1% og 0,9% á Suðurnesjum. Alls fækkaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 20 þúsund en samanlagt um rúmlega 5.500 í öðrum landshlutum.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 315.000, eða 86% af gistinóttum hótela, sem var 2,9% fækkun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 50.000 sem var 24,5% minna en í nóvember árið 2024. Meginþorri erlendra ferðamanna var af bandarísku bergi brotinn en gistinóttum þeirra fækkaði um 19,5%. Þá fækkaði einnig ferðamönnum frá Bretlandi um 7,4%. Áframhaldandi aukning var á gistinóttum ferðamanna frá Asíu og fjölgaði gistinóttum Kínverja um 60,3%. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum erlendra ferðamanna á hótelum um 10,0%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar um 27,8% á sama tíma.

Framboð hótelherbergja jókst um 3,1% á landinu í nóvember. Mest jókst framboð herbergja á Suðurlandi eða um 12,1%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði herbergjum um 3,4% og 2,6% á Norðurlandi. Litlar breytingar voru á Austurlandi (óbreytt) og höfuðborgarsvæðinu (0,3%). Fjöldi hótelherbergja dróst hins vegar saman á Suðurnesjum um 6,0%. Alls voru 173 hótel starfandi í nóvember 2025 með 12.115 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2024 þegar alls voru starfandi 169 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 58 hótel með alls 5.555 herbergi og 53 á Suðurlandi með 3.163 herbergi.

Herbergjanýting dróst saman um 5,0 prósentustig á landinu í heild. Mest minnkaði nýtingin á Austurlandi (12,5 prósentustig) og höfuðborgarsvæðinu (6,1 prósentustig). Þá var einnig 5,9 prósentustiga minnkun á Suðurlandi og 4,2 prósentustiga minnkun á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á Norðurlandi dróst nýtingin saman um 2,3 prósentustig en á Suðurnesjum batnaði hún um 4,1 prósentustig. Í nóvember var herbergjanýting mest á höfuðborgarsvæðinu (69,4%) og því næst á Suðurnesjum (63,8%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í nóvember tæplega 502.000. Þetta var 6,8% minnkun á fjölda miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 538.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 418.000 (365.000 á hótelum og 53.000 á gistiheimilum) en tæplega 84.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.). Á fyrstu ellefu mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur alls tæplega 9.762.000 sem var 10,1% meira en á sama tíma árið 2024.

Endurskoðun gagna eftir þjóðerni
Endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur er nú lokið og hafa gögn á vef Hagstofunnar verið uppfærð í samræmi við það.

Á árunum 2020 til 2024 voru gistinætur Íslendinga ofmetnar og gistinætur útlendinga vanmetnar þar sem stór hluti skráðra gististaða sendi inn rangar upplýsingar um flokkun gistinátta eftir þjóðerni. Af þeim sökum þurfti að endurmeta dreifingu gistinátta og áætla á nýjan leik fjölda gistinátta á þá gististaði sem ekki skiluðu inn gistiskýrslum. Tölur fyrir árin 2020 til 2024 breyttust því umtalsvert frá fyrri birtingum. Gögn þessara ára eru einnig að stærri hluta áætluð en gögn annarra ára og geta mögulega tekið breytingum eftir því sem nýjar upplýsingar berast.

Allar tölur um áætlaðar gistinætur fyrir þessi ár og árið 2025 eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum á milli mánaðarlegra birtinga. Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir nóvember 2025.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.