FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 22. DESEMBER 2022

Gistinætur það sem af er ári eru 8.392.800 sem er um 77% aukning frá fyrra ári og 4% aukning frá metárinu 2018 þegar þær voru 8.099.700.

Gistinætur á skráðum gististöðum voru um 532.800 í nóvember síðastliðnum og er það aukning um 54% frá fyrra ári (347.100). Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 77% gistinátta, eða um 409.700, sem er 56% aukning frá fyrra ári (261.900). Gistinætur Íslendinga voru um 123.100 sem er 45% aukning frá fyrra ári (85.100). Vert er að hafa í huga að í nóvember 2021 voru samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins í gildi. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 419.000 og um 113.800 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í nóvember voru 353.500 og jókst hótelgisting í öllum landshlutum samanborið við nóvember 2021. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 282.400, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 71.100 (20%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 46% og þeim íslensku um 25%.

Á tólf mánaða tímabili, frá desember 2021 til nóvember 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.585.900 sem er tvöfalt meira en á sama tímabili árið áður (2.277.400). Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.

Framboð hótelherbergja í nóvember jókst um 5% frá nóvember 2021. Herbergjanýting á hótelum var 58,4% og jókst um 13,9 prósentustig frá fyrra ári.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir nóvember 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.