FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. JÚLÍ 2025

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 9,4% í júní 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 534.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 488.000 á sama tíma árið 2024. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum og hlutfallslega mest á Vesturlandi og Vestfjörðum (30,5%) og Austurlandi (21,5%). Þar að auki var umtalsverð aukning á Suðurnesjum (11,3%) og Suðurlandi (9,9%) en litlu minni á Norðurlandi (6,3%) og höfuðborgarasvæðinu (5,8%). Alls fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um tæplega 14 þúsund en samanlagt um rúmlega 32 þúsund í öðrum landshlutum.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru rúmlega 488.000, eða 91% af gistinóttum hótela, og var það 12,4% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 46.000 sem var 14,6% minna en í júní árið 2024. Meginþorri erlendra ferðamanna var af bandarísku bergi brotinn og fjölgaði gistinóttum þeirra um 8,4% í júní. Töluverð aukning var einnig á gistinóttum ferðamanna frá Þýskalandi (24,4%), Bretlandi (19,4%) og Kína (70,7%). Á fyrstu sex mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 5,4%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar um 3,2% á sama tíma.

Framboð hótelherbergja breyttist lítillega á landinu í júní. Mest jókst framboð herbergja á Vesturlandi og Vestfjörðum (2,5%) og Suðurnesjum (1,0%). Á Austurlandi dróst framboðið hins vegar saman um 2,1% og að minna leyti á Suðurlandi (-0,9%). Minni breytingar voru á höfuðborgarsvæðinu (0,3%) og Norðurlandi (-0,5%). Alls voru 177 starfandi hótel í júní 2025 með samtals 12.100 herbergi og var fjöldinn óbreyttur frá fyrra ári. Þar af voru 60 á höfuðborgarsvæðinu með alls 5.621 herbergi og 47 á Suðurlandi með 2.761 herbergi.

Herbergjanýting jókst um 7,0 prósentustig á landinu í heild og var aukning í öllum landshlutum. Mest jókst nýtingin á Vesturlandi og Vestfjörðum (17,8 prósentustig) og Austurlandi (16,2 prósentustig). Þá var einnig töluverð aukning á Suðurnesjum (8,9 prósentustig), Suðurlandi (8,4 prósentustig) og Norðurlandi (7,4 prósentustig). Herbergjanýting jókst svo minnst á höfuðborgarsvæðinu eða um 3,4 prósentustig. Nýting hótelherbergja var mest á Suðurlandi (84,7%) og því næst á höfuðborgarsvæðinu (81,6%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í júní rúmlega 1.192.000. Þetta var 8,4% aukning miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 1.100.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 708.000 (533.600 á hótelum og 174.600 á gistiheimilum) en rúmlega 484.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.). Á fyrstu sex mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur alls 3.984.000 sem var 4,8% meira en á sama tíma árið 2024.

Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og eru því takmarkaðar upplýsingar birtar um fjölda gistinátta eftir þjóðerni. Fyrir vikið eru eingöngu birtar tölur um fjölda gistinátta eftir þjóðernum fyrir hótel. Þær tölur sem eru birtar eru bráðabirgðatölur og geta breyst við næstu mánaðarlegu birtingar. Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í júní.

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júní 2025.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.