FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. JÚLÍ 2023

Skráðar gistinætur í júní hafa aldrei verið fleiri, eða 1.170.600 sem er um 17% aukning frá 2022 (1.012.300) sem var fyrra metár.

Gistinætur erlendra ferðamanna í júní voru um 77% gistinátta, eða um 903.400, sem er 16% aukning frá fyrra ári (777.900). Gistinætur Íslendinga voru um 267.200 sem er 14% aukning frá fyrra ári (234.400). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 703.000 og um 468.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Áætlaður fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í júní var um 200.000.

Gistinætur á hótelum í júní voru 510.700 sem er 3% aukning frá fyrra ári (495.500). Hótelgisting jókst í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu samanborið við júní 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 419.200, eða 82% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 91.500 (18%). Gistinætur erlendra ferðamanna jukust um 4% á meðan þær íslensku voru á pari við fyrra ár.

Framboð hótelherbergja í júní var í heildina svipað og í júní 2022. Herbergjanýting á landinu jókst um 1,3 prósentustig og varð mesta aukningin á Suðurnesjum og Suðurlandi.

Áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir júní og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 200.000. Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 11.000. Gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 26.000.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá júní 2020 til júní 2021 og má ætla að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júní 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.