Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 13,5% í júlí 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 654.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 576.000 á sama tíma árið 2024. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum og hlutfallslega mest á Suðurlandi (23,0%). Þar að auki var umtalsverð aukning á Austurlandi (19,4%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (16,9%). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 10,7% en minni aukning var á Norðurlandi (5,9%) og Suðurnesjum (4,0%). Alls fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 28 þúsund en samanlagt um tæplega 50 þúsund í öðrum landshlutum, þar af um ríflega 33 þúsund á Suðurlandi.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru tæplega 592.000, eða 91% af gistinóttum hótela, og var það 15,3% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 62.000 sem var 1,5% minna en í júlí árið 2024. Meginþorri erlendra ferðamanna var af Bandarísku bergi brotinn og fjölgaði gistinóttum þeirra um 7,7% í júlí. Töluverð aukning var einnig á gistinóttum ferðamanna frá Þýskalandi (13,8%), Bretlandi (18,4%) og Kína (86,2%). Á fyrstu sjö mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 7,4%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar um 2,9% á sama tíma.
Framboð hótelherbergja jókst um 3,3% á landinu í júlí. Mest jókst framboð herbergja á Suðurlandi eða um 10,4%. Á Norðurlandi jókst framboðið um 3,0% auk þess sem 2,5% aukning var á Vesturlandi og Vestfjörðum. Litlar breytingar voru í öðrum landshlutum þar sem fjöldi hótelherbergja jókst um 0,7% á höfuðborgarsvæðinu, stóð í stað á Suðurnesjum og dróst saman um 0,9% á Austurlandi. Alls var 181 hótel starfandi í júlí 2025 með rúmlega 12.500 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2024 þegar alls voru starfandi 177 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 60 hótel með alls 5.621 herbergi og 52 á Suðurlandi með 3.092 herbergi.
Herbergjanýting jókst um 7,9 prósentustig á landinu í heild og var aukning í öllum landshlutum. Mest jókst nýtingin á Austurlandi (19,2 prósentustig) en þá var einnig umtalsverð aukning á Vesturlandi og Vestfjörðum (10,5 prósentustig). Á Suðurlandi jókst herbergjanýting um 8,0 prósentustig og 7,8 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu. Loks jókst nýting hótelherbergja um 5,2 prósentustig á Suðurnesjum og 4,0 prósentustig á Norðurlandi. Herbergjanýting var mest á Austurlandi (96,6%) og því næst á Suðurlandi (94,2%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í júlí rúmlega 1.755.000. Þetta var 16,5% aukning miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 1.506.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 887.000 (654.000 á hótelum og 233.000 á gistiheimilum) en rúmlega 868.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.). Á fyrstu sjö mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur alls 5.739.000 sem var 8,1% meira en á sama tíma árið 2024.
Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og eru því takmarkaðar upplýsingar birtar um fjölda gistinátta eftir þjóðerni. Fyrir vikið eru eingöngu birtar tölur um fjölda gistinátta eftir þjóðernum fyrir hótel. Þær tölur sem eru birtar eru bráðabirgðatölur og geta breyst við næstu mánaðarlegu birtingar. Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í júlí.
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júlí 2025.