FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. MARS 2023

Skráðar gistinætur í febrúar hafa aldrei verið fleiri eða 575.300 sem er um 45% aukning frá fyrra ári (396.400) og 9,4% aukning frá fyrra metári 2018 (525.700).

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 79% gistinátta, eða um 455.100, sem er 55% aukning frá fyrra ári (396.400). Gistinætur Íslendinga voru um 120.100 sem er 15% aukning frá fyrra ári (104.500). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 435.700 og um 139.600 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Áætlaður fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í febrúar var um 75.000.

Gistinætur á hótelum í febrúar voru 371.900 sem er 37% aukning frá fyrra ári (270.900). Hótelgisting jókst í öllum landshlutum samanborið við febrúar 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 304.900, eða 82% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 62.300 (18%). Gistinætur erlendra ferðamanna jukust um 46% og gistinætur Íslendinga um 8%.

Framboð hótelherbergja í febrúar jókst um 5% frá febrúar 2022. Herbergjanýting á hótelum var 65,9% og jókst um 14,9 prósentustig frá fyrra ári.

Áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir bæði janúar og febrúar og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í janúar um 52.000. Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 3.000 í janúar og um 2.000 í febrúar. Gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 12.000 í janúar og um 15.000 í febrúar.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu. Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá apríl 2020 til maí 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 og 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir febrúar 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.