FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. SEPTEMBER 2023

Skráðar gistinætur í ágúst voru 1.522.000 sem er um 13% aukning frá ágúst 2022 (1.347.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 599.200 sem er nánast það sama og í ágúst á fyrra ári.

Gistinætur erlendra ferðamanna í ágúst voru um 79% gistinátta, eða um 1.196.000, sem er 13% aukning frá fyrra ári (1.062.300). Gistinætur Íslendinga voru um 326.000 sem er 14% aukning frá fyrra ári (284.900). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 808.000 og um 714.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Enn fremur er áætlað að fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í ágúst hafi verið um 210.000.

Gistinætur á hótelum í ágúst voru 599.200 eða 0,2% fleiri en á fyrra ári (597.800). Hótelgisting jókst um um það bil 7% á bæði Norðurlandi og Suðurlandi en dróst saman í öllum öðrum landshlutum samanborið við ágúst 2022. Hlutfallsleg fækkun gistinátta var áberandi mest á Suðurnesjum eða um 7,7%. Fjöldi gistinátta á höfuðborgarsvæðinu var 270.500 og dróst saman um 2,3% frá ágúst 2022.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 504.000, eða 84% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 95.200 (16%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 2,4% en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 9,7%.

Framboð hótelherbergja í ágúst hefur aukist um 0,9% frá ágúst 2022. Herbergjanýting á landinu dróst saman um 1,2 prósentustig. Mest dróst nýtingin saman um 4,3 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu en jókst um 10,4 prósentustig á Suðurnesjum. Í öðrum landshlutum nam breytingin innan við einu prósentustigi.

Áætlun sem byggir á svörum erlendra ferðamanna úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir ágúst og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 210.000. Auk þess er metið að gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða hafi verið um 11.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 41.000.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands á meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í ágúst 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá apríl 2020 til maí 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir ágúst 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.