FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. JÚLÍ 2011


Gistinóttum fjölgaði um 12% í maí
Gistinætur á hótelum voru 119.500 í maí síðastliðnum og fjölgaði um 12% frá sama tíma í fyrra þegar þær voru 106.400. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 13% milli ára. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 12% á sama tíma.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 85.510 gistinætur í maí sem er 18% aukning frá fyrra ári. Gistinætur á Suðurnesjum voru 5.450, sem er 34% aukning frá maí í fyrra. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 3.550 í 4.780 eða um 35% samanborið við maí 2010. Gistinætur á Norðurlandi voru svipaðar milli ára eða um 8.100. Á Austurlandi sem og Suðurlandi fækkaði gistinóttum um 13% frá því í maí 2010.

Gistinóttum á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins fjölgaði um tæp 10% milli ára
Fyrstu fimm mánuði ársins voru gistinætur 463.000 en 422.200 á sama tímabili í fyrra. Gistinóttum fjölgaði um 22% á Suðurnesjum, 19% á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða, 12% á höfuðborgarsvæðinu og 7% á Austurlandi. Fyrstu fimm mánuði ársins voru gistinætur næstum jafnmargar á Suðurlandi og í fyrra en á Norðurlandi fækkaði þeim um 13%.

Gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 10% fyrstu fimm mánuði ársins en gistinóttum Íslendinga um 8%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.