FRÉTT FÉLAGSMÁL 22. SEPTEMBER 2016

Árið 2015 veittu sveitarfélög 4.729 einstaklingum með fötlun þjónustu á 15 þjónustusvæðum og hafði þeim fækkað um 101 (-2,1%) frá árinu áður. Af þeim voru 1.673 börn 17 ára og yngri (35,4%).  Drengir og karlar voru fleiri en stúlkur og konur í heildar-hópnum eða tæp 62%, enda voru þeir í miklum meirihluta í yngsta aldurshópnum (tæp 68%). Þjónustuþegar voru 1,4% landsmanna, 2,1% barna og 0,7% fólks 67 ára og eldra.

Í desember árið 2015 voru tæp 21% þessara einstaklinga í sérstökum búsetuúrræðum, tæp 11% í leiguhúsnæði í eigu sveitarfélaga eða félagsamtaka, en 52% bjuggu hjá foreldrum eða ættingjum. Af 18 ára og eldri voru tæp 32% í sérstökum búsetuúrræðum og 17% í leiguhúsnæði í eigu sveitarfélaga eða félagasamtaka.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1257 , netfang bjorn.g.stefansson@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.