FRÉTT FÉLAGSMÁL 19. APRÍL 2011

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2010. Samantektin sýnir að í desember voru vistrými alls 3.125, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum 2.217 eða 70,9% allra vistrýma. Á milli áranna 2009 og 2010 fækkaði rýmum á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum um 168. Þar af fækkaði dvalarrýmum um 70 og hjúkrunarrýmum um 98, en rýmum á heilbrigðisstofnunum fækkaði um 76 á sama tíma. Árið 2010 voru rúm 54% vistrýma á höfuðborgarsvæðinu, en tæp 46% annarsstaðar.

Stofnanir með vistrými fyrir aldraða eftir tegund í desember 2009 og 2010
    2009 2010
    fjöldi % fjöldi %
Alls   3.369 100,0 3.125 100,0
Dvalar- og/eða hjúkrunarheimili  2.927 86,9 2.759 88,3
Dvalarrými 612 18,2 542 17,3
Hjúkrunarrými  2.315 68,7 2.217 70,9
Heilbrigðisstofnanir/sjúkrahús  442 13,1 366 11,7
Hjúkrunarrúm  278 8,3 227 7,3
Öldrunarlækningarúm 164 4,9 139 4,4

Alls bjuggu 3.144 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember í fyrra og hafði þeim þá fækkað um 47 frá árinu 2009. Konur voru rúm 64% allra vistmanna. Um 9% 67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember 2010. Þetta hlutfall var rúm 10% á landsbyggðinni en rúm 8% á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2010 bjuggu rúm 21% fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra. Það átti við um rúm 17% karla á þessum aldri og rúm 24% kvenna.

Hagstofa Íslands hefur leitað upplýsinga um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra hjá rekstraraðilum frá árinu 1993.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.