Árið 2018 fengu 5.014 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fækkað um 128 (-2,5%) frá árinu áður. Frá árinu 2013 hefur heimilum með fjárhagsaðstoð fækkaði milli ára eftir að hafa fjölgað árlega frá árinu 2007. Breyting í fjölda heimila sem fá fjárhagsaðstoð hefur haldist í hendur við þróun atvinnuleysis eins og kemur fram í mynd 1, sem sýnir fjölda viðtakenda fjárhagsaðstoðar og árlegt hlutfall atvinnuleysis samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar árin 2003 til 2018.

fjarhagursvf2019

Frá árinu 2017 til 2018 hækkuðu útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar um 74 milljónir króna eða 2,5%, en á föstu verðlagi hækkuðu þau um 1,6%. Meðalmánaðargreiðslur fjárhagsaðstoðar voru 136.242,- krónur og lækkuðu frá árinu á undan um 1.051 krónu eða 0,8%. Árið 2018 var fjárhagsaðstoð greidd að meðaltali í 4,8 mánuði, en 4,5 mánuði árið 2017.

Af þeim heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2018, voru heimili einstæðra barnlausra karla 43,1% og heimili einstæðra barnlausra kvenna 24,1% en heimili einstæðra kvenna með börn 22,2%. Heimili hjóna/sambúðarfólks voru 8,8%. Árið 2018 voru 29,6% viðtakenda fjárhagsaðstoðar atvinnulausir og af þeim voru tæp 86% án bótaréttar, alls 1.268 einstaklingar.

Árið 2018 bjuggu 8.206 einstaklingar eða 2,3% þjóðarinnar á heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð, þar af voru 2.710 börn (17 ára og yngri) eða 3,4% barna á þeim aldri. Árið 2017 bjuggu 8.223 einstaklingar eða 2,4% þjóðarinnar á heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð, þar af voru 2.887 börn eða 3,6% barna.

Fimmti hver 65 ára og eldri fær félagslega heimaþjónustu
Árið 2018 fengu 9.461 heimili félagslega heimaþjónustu. Tæplega fimm af hverjum sex heimilum voru heimili aldraðra eða 7.742 (81,8%) og hafði þeim fjölgað um 365 (4,9%) frá árinu 2017. Á þessum heimilum aldraðra bjuggu 9.856 einstaklingar sem jafngildir 19,5% landsmanna 65 ára og eldri. Þeir sem voru 80 ára og eldri á heimilum sem nutu félagslegrar heimaþjónustu voru 5.790 eða 46,2% fólks á þeim aldri.

Fækkun barna í dagvist á einkaheimilum
Árið 2018 voru 1.295 börn í dagvist á einkaheimilum og hafði fækkað um 56 (4,2%) frá árinu á undan. Alls voru 5,0% barna fimm ára og yngri í slíkri dagvistun árið 2018. Tæp 5% allra barna á fyrsta ári voru í dagvistun á einkaheimili og tæp 26% eins árs barna, en það eru börn sem ekki hafa náð leikskólaaldri.

Talnaefni