FRÉTT FÉLAGSMÁL 25. NÓVEMBER 2009

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um félagsþjónustu sveitarfélaga árið 2008. Allt frá árinu 1987 hefur Hagstofan leitað slíkra upplýsinga frá sveitarfélögum.

Heimilum sem fá greidda fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fjölgar á ný
Árið 2008 fengu 5.029 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 749 (17,5%) frá árinu áður. Árið 2003 þáðu 6.312 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga en til ársins 2007 fækkaði þeim jafnt og þétt eða sem nam 32% á öllu tímabilinu. Fjölmennasti hópurinn árið 2008 sem þáði fjárhagsaðstoð sveitarfélaga var sem fyrr einstæðir barnlausir karlar (39% heimila) og einstæðar konur með börn (32,8% heimila).

Á heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2008 bjuggu 9.097 einstaklingar eða 2,8% þjóðarinnar, þar af voru 3.587 börn (17 ára og yngri) eða 4,5% barna á þeim aldri. Árið 2007 bjuggu 7.997 einstaklingar eða 2,6% þjóðarinnar á slíkum heimilum, þar af voru 3.284 börn eða 4,1% barna.

Viðtakendur fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga eftir fjölskyldugerð og aldri 2008        
Fjöldi / hlutfall   65 ára  17 ára  
18-24 25-39  40-54 55-64 og   og
  Alls  ára ára  ára  ára eldri yngri Fjöldi
Fjölskyldur og/eða heimili alls 100,0 26,8 42,0 22,4 5,5 3,3 . 5.029
Einstæðir karlar með börn 2,4 0,2 0,9 1,1 0,2 0,0 . 119
Einstæðir karlar, barnlausir 39,0 10,7 15,6 8,5 2,7 1,5 . 1.963
Einstæðar konur með börn 32,8 7,6 17,6 7,2 0,4 0,0 . 1.650
Einstæðar konur, barnlausar 17,0 7,1 4,2 3,1 1,4 1,3 . 856
Hjón/sambúðarfólk með börn 6,5 0,9 3,3 1,9 0,4 0,0 . 327
Hjón/sambúðarfólk, barnlaus 2,3 0,3 0,5 0,6 0,4 0,5 . 114
Fjöldi fjölskyldna og/eða heimila 5.029 1.349 2.112 1.124 279 165 . .
Fjöldi einstaklinga á heimilum 9.097 1.412 2.309 1.279 322 188 3.587 .
Hlutfall af aldurshópum 2,8 4,3 3,3 1,9 1,0 0,5 4,5 .


Árið 2008 var meðalgreiðsla fjárhagsaðstoðar 86.490 krónur á mánuði og fengu heimilin slíkar greiðslur í 3,9 mánuði að meðaltali. Í Reykjavík voru á sama ári greiddar 96.470 krónur að meðaltali á mánuði í fjárhagsaðstoð og að jafnaði í 4,0 mánuði. Árið 2003 voru meðalgreiðslur á mánuði á verðlagi ársins 2008 82.202 krónur og þá var að meðaltali greidd fjárhagsaðstoð í 4 mánuði.

Fimmtungur 65 ára og eldri naut félagslegrar heimaþjónustu sveitarfélaga
Árið 2008 fengu 7.864 heimili félagslega heimaþjónustu sveitarfélaga og hafði heimilum fjölgað um 238 (3,1%) frá árinu á undan. Rúmlega þrjú af hverjum fjórum þessara heimila voru heimili aldraðra eða 6.019 (76,5%). Á þessum heimilum bjuggu 7.582 einstaklingar og jafngildir það 20,5% þeirra landsmanna sem voru 65 ára og eldri. Í Reykjavík naut tæplega fjórðungur (24,2%) 65 ára og eldri félagslegrar heimaþjónustu.

Meðalfjöldi vinnustunda til félagslegrar heimaþjónustu á heimili árið 2008 voru 125 (tæplega 3 stundir á viku) og hafði vinnustundum fækkað um 2 frá árinu á undan. Á heimilum aldraðra var meðalfjöldi vinnustunda 120 árið 2008, en í Reykjavík voru vinnustundirnar 139 á hvert heimili aldraðra sem þjónustunnar naut.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.