Samanlögð orkunotkun í íslensku hagkerfi, samkvæmt orkubókhaldi hagkerfisins, var 168,7 petajúl árið 2024. Orkan var 40% í formi raforku, 26% í formi hitaveitu, 13% steinolía og þotueldsneyti og 12% í formi dísilolíu og bensíns.
Með orkunotkun er átt við orkuinnihald allra orkuvara sem notaðar eru í atvinnurekstri og af heimilum, hvort sem er til framleiðslu orku eða ekki. Dæmi um þetta eru kol sem málmframleiðslan notar í framleiðsluferli sínu. Hlutfall orkuinnihalds kola var um 3% af heildarorkunotkun árið 2024. Þrátt fyrir að vera ekki stór hluti orkunotkunar er losun koltvísýrings frá kolum um þriðjungur af heildarlosun á honum.