Verðmæti seldra framleiðsluvara 2012


  • Hagtíðindi
  • 14. júní 2013
  • ISSN: 1670-4568


Sækja pdf skjal
Verðmæti seldra framleiðsluvara nam 750 milljörðum króna árið 2012, en það er aukning um 30,4 milljarða eða 4,2% frá árinu 2011. Jafnframt hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 1,1% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 3,1% að raungildi. Framleiðsla málma og framleiðsla á fiskafurðum vega sem fyrr þyngst, t.d. nam framleiðsla á fiskafurðum 35,7% af heildarverðmæti árið 2012 og framleiðsla málma 32,7%.

Til baka