Þjóðhagsspá, vor 2013


  • Hagtíðindi
  • 12. apríl 2013
  • ISSN: 1670-4665


Sækja pdf skjal
Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 1,9% árið 2013 en u.þ.b. 2,8% á ári frá og með 2014. Vöxtur einkaneyslu er talinn verða 2,5% en um og yfir 3% á ári frá 2014. Samneysla stendur því sem næst í stað 2013 og 2014 en eykst hægt eftir það. Fjárfesting dregst saman um 2,3% árið 2013 en eykst um 16,9% árið 2014 þegar meiri kraftur verður í stóriðjufjárfestingu. Dregið hefur úr eftirspurn og fjárfestingu frá miðju ári 2012 en það, ásamt verri viðskiptakjörum, skýrir að mestu minni vöxt í hagkerfinu árin 2012 og 2013 en áður var reiknað með.

Til baka