Héraðsdómstólar
- Skráningaratriði fyrir viðfangsefni
- Efni
- Tími
- Áreiðanleiki og öryggismörk
- Samanburður
- Aðgangur að upplýsingum
0. Skráningaratriði fyrir viðfangsefni
0.1 Heiti
Héraðsdómstólar0.2 Efnisflokkur
Dómsmál0.3 Umsjón; stofnun, deild, sérfræðingur o.s.frv.
Lárus BlöndalHagstofa Íslands
sími: 528 1281
larus.blondal@hagstofa.is
0.4 Tilgangur og aðdragandi
Tilgangur er að safna saman upplýsingum um málafjölda og meðferð mála hjá héraðsdómstólum.Aðdragandi er sá að 1. júlí 1992 tóku gildi lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Frá þeim tíma hafa eiginleg dómsmál verið falin sérstökum dómstólum, héraðsdómum, sem eru átta talsins. Hagstofan hefur safnað saman upplýsingum um málafjölda og meðferð mála frá því sú skipan komst á. Eldri tölur, sem eru ekki sambærilegar við tölur siðustu ára, finnast slitrótt allt frá árinu 1864. Frá árinu 1919 verða skýrslurnar fyllri, en ekki er þó um samfellda söfnun upplýsinga að ræða.
0.5 Notendur og notkunarsvið
Notendur eru þeir sem vinna að þessum málaflokki: Dómsmálaráðuneyti og e.t.v. önnur ráðuneyti, Alþingi og stjórnmálamenn. Dómarar nýta þessar upplýsingar á sínum þingum og fyrirspurnir berast frá almenningi og nemendum sem vinna að ákveðnum verkefnum þessu tengdu.Upplýsingarnar ættu að nýtast við opinbera stjórnsýslu, í skólakerfinu og við einstaka rannsóknir.
0.6 Heimildir
Hinir átta héraðsdómar landsins.0.7 Lagalegur grundvöllur fyrir hagskýrslugerð
Lög um Hagstofu Íslands nr. 163/2007.0.8 Svarbyrði við innsöfnun
Héraðsdómar senda upplýsingar um starfsemi liðins árs, svo fljótt sem auðið er. Gögn eru send á tölvutæku formi til sérfræðings sem sameinar þau, flytur yfir á Excelskrár og sendir til Hagstofunnar. 0.9 Ákvæði vegna EES og ESB
1. Efni
1.1 Efnislýsing
Upplýsingum er safnað um fjölda innkominna mála hjá héraðsdómum ár hvert, afgreiðslu þeirra mála sem tekin eru fyrir og fjölda óafgreiddra mála í árslok. Einnig kemur fram málatími afgreiddra mála. Málunum er skipt í nokkra flokka og eru opinber mál og einkamál stærstir. Af öðrum flokkum má nefna skipti á dánarbúum, gjaldþrotaskipti, rannsóknarúrskurði, aðfarabeiðnir, auk annarra minni málaflokka. Í lok árs 2005 fengust upplýsingar um sakfellingar sem sundurgreindar voru eftir tegundum brota. Sú sundurgreining nær aftur til ársins 1993 og var sérstakt rit Hagtíðinda gefið út 26. nóvember 2006 um þau mál, en það er í fyrsta sinn sem þær upplýsingar birtast opinberlega.1.2 Tölfræðileg hugtök
2. Tími
2.1 Viðmiðunartími talnaefnis
Viðmiðunartími er almanaksárið.2.2 Vinnslutími
Vinnslutími talnaefnis er um 2 vikur, ef ekki þarf að leita frekari upplýsinga frá héraðsdómstólum. Ef misræmi kemur upp er hins vegar erfitt að segja til um vinnslutíma, þar sem bíða þarf eftir að fyrirspurnum sé svarað.2.3 Stundvísi birtingar
Töflur um starfsemi dómstóla hafa verið útgefnar u.þ.b. einum mánuði eftir að endanlegar upplýsingar berast til Hagstofunnar. Stefnt er að því að birta upplýsingar fyrir nýliðið ár eigi síðar en í mars ár hvert.2.4 Tíðni birtinga
Hér áður voru töflur birtar einu sinni á ári í Hagtíðindum og síðan heildartöflur í Landshögum, árbók Hagstofunnar. Nú eru efnisflokkaðar veftöflur aðgengilegar og uppfærsla vegna nýliðins árs fer fram á fyrstu mánuðum hvers árs. Jafnframt birtast heildartöflur í Landshögum auk þess sem rit Hagtíðinda var gefið út á árinu 2004 og er stefnt að annarri útgáfu Hagtíðinda á árinu 2007.
3. Áreiðanleiki og öryggismörk
3.1 Nákvæmni gagna og áreiðanleiki
Gögnin teljast nákvæm og áreiðanleg.3.2 Skekkjuvaldar í gögnum
Gögn eru tölvuskráð í öllum héraðsdómum frá og með árinu 1999. Töluvert var um handtalningu áður sem gat orsakað misræmi. Það ætti nú að vera úr sögunni nema þegar gera þarf breytingar á skráningu. Nefna má sem dæmi að almenn einkamál eru stundum flokkuð í upphafi sem útivistarmál, en geta síðan breyst yfir í munnlega flutt mál.3.3 Tölur um öryggismörk/skekkjumælingar
Öll mál sem tekin eru fyrir hjá héraðsdómum eiga að skila sér í heildartalningu mála.4. Samanburður
4.1 Samanburðarhæfi milli tímabila
Samanburður milli tímabila ætti að vera öruggur þar sem upplýsingar eiga að berast um öll innkomin og afgreidd mál og samræmi er í meðferð talna frá því byrjað var að birta tölurnar.4.2 Samanburður við aðrar hagtölur
Ekki er vitað til þess að samanburður hafi verið gerður við aðrar hagtölur. 4.3 Samband milli bráðabirgðatalna og lokatalna
Engar bráðabirgðatölur eru gefnar út.5. Aðgangur að upplýsingum
5.1 Miðlunarleiðir
Hagtölur, efnisflokkaðar veftöflurHatgíðindi, ritröð
Landshagir, árbók Hagstofu Íslands
5.2 Grunngögn; varðveisla og notkunarmöguleikar
Gögn eru send í Excel skjali (móðurskjal), sem er sérstaklega varðveitt fyrir ár hvert. Notkunarmöguleikar eru nokkuð góðir og endanlegar töflur eru að verulegu leyti með sjálfvirka tengingu við móðurskjalið þannig að yfirfærsla fer að mestu rafrænt fram.5.3 Skýrslur
Ekki vitað um sérstakar skýrslur.5.4 Aðrar upplýsingar
© Hagstofa �slands, �ann 18-8-2008