Atvinnuleysi 5,2% í júní

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í júní 2012 að jafnaði 192.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 182.400 starfandi og 10.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,8%, hlutfall starfandi 81,3% og atvinnuleysi var 5,2%. Atvinnuleysi hefur aukist um 0,6 prósentustig frá því í júní 2011 en þá var atvinnuleysi 4,7%.

Á öðrum ársfjórðungi 2012 mældist atvinnuþátttaka 82,8% að jafnaði. Hlutfall starfandi var 76,9% og atvinnuleysi 7,2%. Starfandi fjölgaði um 2.200 manns og atvinnulausum fækkaði um 2.500 frá öðrum ársfjórðungi 2011.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Vinnumarkaður júní 2012

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 6%

Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í júní 2012 var 11.100 eða 6% en var 9.600 eða 5,4% í maí. Fjöldi starfandi var 171.700 í júní 2012 eða 76,9% en var 170.200 í maí eða 76,6%. Þrátt fyrir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er hærra nú en á sama tíma fyrir ári sýnir leitni árstíðaleiðréttingar að enn dregur nokkuð úr atvinnuleysi.

Langtímaatvinnuleysi minnkar á milli ára

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á öðrum ársfjórðungi 2012 höfðu um 2.800 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 21,2% atvinnulausra. Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.900 manns eða 24,7% atvinnulausra.

Framkvæmd

Júní 2012 nær til fjögurra vikna, frá 4. júní til 1. júlí. Úrtakið í maí var 1.206 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.187 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 992 einstaklingum sem jafngildir 83,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2% og atvinnuleysi ±1,5%. Allar fjöldatölur eru afrúnnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í Júní - Mæling
             
  2010 2011 2012
Alls 16-74 ára
Atvinnuþátttaka 86,0 ±1,9 84,5 ±2 85,8 ±2,2
Hlutfall starfandi 80,8 ±2,2 80,6 ±2,2 81,3 ±2,5
Atvinnuleysi 6,0 ±1,5 4,7 ±1,5 5,2 ±1,5
Vinnustundir 40,3 ±1 40,7 ±1 42,0 ±1,2
Vinnuafl 192.100 ±4300 190.200 ±4400 192.500 ±5000
Starfandi 180.500 ±4900 181.200 ±4900 182.400 ±5600
Atvinnulausir 11.600 ±2900 8.900 ±2500 10.100 ±2900
Utan vinnumarkaðar 31.300 ±4300 34.800 ±4400 31.800 ±5000
Áætlaður mannfjöldi 223.400 224.900 224.300

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - Árstíðaleiðrétting
   
  jan.12 feb.12 mar.12 apr.12 maí.12 jún.12
Alls 16-74 ára
Atvinnuþátttaka 80,1 79,8 80,5 80,4 81,0 81,8
Hlutfall starfandi 75,0 74,2 74,6 74,9 76,6 76,9
Atvinnuleysi 6,3 7,1 7,3 6,8 5,4 6,0
Vinnustundir 40,0 39,9 40,0 39,8 39,8 40,0
Vinnuafl 181.400 179.400 180.300 180.200 179.800 182.700
Starfandi 169.900 166.700 167.100 167.900 170.200 171.700
Atvinnulausir 11.500 12.700 13.100 12.300 9.600 11.100
Utan vinnumarkaðar 45.100 45.300 43.800 44.000 42.300 40.600
Áætlaður mannfjöldi 226.400 224.700 224.000 224.200 222.100 223.400

Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - Árstíðaleiðrétt leitni
   
  jan.12 feb.12 mar.12 apr.12 maí.12 jún.12
Alls 16-74 ára
Atvinnuþátttaka 79,7 79,8 80,1 80,5 80,9 81,2
Hlutfall starfandi 74,5 74,6 74,9 75,4 75,9 76,2
Atvinnuleysi 6,6 6,6 6,5 6,4 6,3 6,2
Vinnustundir 30,4 30,4 30,4 30,3 30,3 30,3
Vinnuafl 178.100 178.500 179.300 180.300 181.200 181.800
Starfandi 166.400 166.800 167.600 168.800 169.900 170.500
Atvinnulausir 11.700 11.700 11.700 11.500 11.300 11.300
Utan vinnumarkaðar 45.300 45.000 44.500 43.600 42.700 42.100
Áætlaður mannfjöldi 223.400 223.500 223.700 223.900 223.900 223.900

Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi - Hagtíðindi

Talnaefni