Atvinnuleysi 4,7% í febrúar
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í febrúar 2013 að jafnaði 178.400 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 170.000 starfandi og 8.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,9%, hlutfall starfandi 75,2% og atvinnuleysi var 4,7%. Atvinnuleysi var 2,6 prósentustigum lægra en í febrúar 2012 en þá var atvinnuleysi 7,3%. Atvinnuleysi í febrúar 2013 var 4,4% á meðal karla miðað við 7,9% í febrúar 2012 og meðal kvenna var það 5% miðað við 6,6% í febrúar 2012.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Flæðirit – Vinnumarkaður febrúar 2013

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,7%
Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í febrúar 2013 var 8.400 eða 4,7% en var 10.200 eða 5,7% í janúar 2013. Fjöldi starfandi í febrúar 2013 var 172.200 eða 76,3% en var 169.900 eða 75,5% í janúar 2013. Atvinnuleysi minnkaði því um eitt prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi hækkar um 0,8 prósentustig. Leitni árstíða¬leiðrétt¬ingar á atvinnuleysi sýnir að síðastliðna sex mánuði hefur atvinnulausum fækkað um 8,1% og hlutfallið minnkað um 0,5 prósentustig. Ef litið er til síðustu tólf mánaða sýnir leitnin að fjöldi atvinnulausra minnkaði um 25,9% og hlutfallið lækkaði um 1,8 prósentustig. Leitnin sýnir enn hæga þróun á starfandi fólki síðustu tólf mánuði eða 1,9% aukningu á fjölda starfandi og hlutfallið hefur hækkað um 1,6 prósentustig.

.
Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnu sveiflurnar frá öðrum óreglulegum breytingum. Leiðrétting gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.
Febrúar 2013 nær til fjögurra vikna, frá 4. febrúar til 3. mars 2013. Úrtakið í desember var 1.199 einstaklingur á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.174 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 954 einstaklingum sem jafngildir 81,2% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,6%, hlutfall starfandi ±2,8% og atvinnuleysi ±1,5%. Allar fjöldatölur eru afrúnnaðar að næsta hundraði.
| Tafla 1. Vinnumarkaður í febrúar - mæling | ||||||
| Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
| 2011 | (±95%) | 2012 | (±95%) | 2013 | (±95%) | |
| Alls 16-74 ára | ||||||
| Atvinnuþátttaka | 78,6 | 2,6 | 77,5 | 2,6 | 78,9 | 2,6 |
| Hlutfall starfandi | 72,4 | 2,8 | 71,8 | 2,8 | 75,2 | 2,8 |
| Atvinnuleysi | 7,9 | 1,9 | 7,3 | 1,5 | 4,7 | 1,5 |
| Vinnustundir | 40,4 | 1,3 | 40,3 | 1,3 | 38,8 | 1,3 |
| Vinnuafl | 174.400 | 5.700 | 172.900 | 5.800 | 178.400 | 6.000 |
| Starfandi | 160.600 | 6.300 | 160.300 | 6.300 | 170.000 | 6.300 |
| Atvinnulausir | 13.800 | 3.400 | 12.600 | 3.200 | 8.400 | 2.700 |
| Utan vinnumarkaðar | 47.600 | 5.700 | 50.200 | 5.800 | 47.800 | 6.000 |
| Áætlaður mannfjöldi | 222.000 | • | 223.100 | • | 226.200 | • |
| Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - árstíðaleiðrétting | ||||||
| sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | jan.13 | feb.13 | |
| Alls 16-74 ára | ||||||
| Atvinnuþátttaka | 81,8 | 80,2 | 78,5 | 80,7 | 80,1 | 80,0 |
| Hlutfall starfandi | 77,6 | 76,5 | 74,7 | 76,4 | 75,5 | 76,3 |
| Atvinnuleysi | 5,2 | 4,6 | 4,8 | 5,4 | 5,7 | 4,7 |
| Vinnustundir | 39,3 | 39,5 | 39,3 | 39,7 | 39,1 | 39,2 |
| Vinnuafl | 182.300 | 179.000 | 176.800 | 181.400 | 180.100 | 180.600 |
| Starfandi | 172.700 | 170.700 | 168.400 | 171.600 | 169.900 | 172.200 |
| Atvinnulausir | 9.500 | 8.300 | 8.400 | 9.800 | 10.200 | 8.400 |
| Utan vinnumarkaðar | 40.400 | 44.300 | 48.600 | 43.300 | 44.800 | 45.100 |
| Áætlaður mannfjöldi | 222.700 | 223.300 | 225.400 | 224.700 | 225.000 | 225.700 |
| Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
| sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | jan.13 | feb.13 | |
| Alls 16-74 ára | ||||||
| Atvinnuþátttaka | 79,7 | 79,7 | 79,6 | 79,7 | 79,9 | 80,1 |
| Hlutfall starfandi | 75,3 | 75,3 | 75,4 | 75,6 | 75,8 | 76,0 |
| Atvinnuleysi | 5,6 | 5,4 | 5,3 | 5,2 | 5,1 | 5,1 |
| Vinnustundir | 39,5 | 39,4 | 39,4 | 39,4 | 39,3 | 39,3 |
| Vinnuafl | 178.300 | 178.800 | 178.900 | 179.100 | 179.300 | 179.600 |
| Starfandi | 168.400 | 169.000 | 169.500 | 169.800 | 170.100 | 170.500 |
| Atvinnulausir | 9.900 | 9.700 | 9.500 | 9.300 | 9.200 | 9.100 |
| Utan vinnumarkaðar | 45.300 | 45.700 | 45.900 | 45.600 | 45.100 | 44.700 |
| Áætlaður mannfjöldi | 223.600 | 224.400 | 224.800 | 224.700 | 224.500 | 224.300 |