Atvinnuleysi 2,3%
Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,3% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,5% hjá körlum og 2,2% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,5%.
Á fyrsta ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2,0% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,9%.
Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Starfandi fólk 174.000 og atvinnuþátttakan var 81,0%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2008 var 174.000 manns og fjölgaði um 1.200 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.100 manns sem jafngildir 81,0% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,5% og kvenna 76,1% Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru alls 176.300 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 82,2%. Atvinnuþátttaka karla var 86,2% og kvenna 77,9%.
Vinnutími 40,8 klst. á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 46,2 klst., 49 klst. hjá körlum en 41,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 22 klst., 20 klst. hjá körlum en 22,8 klst. hjá konum.
Á fyrsta ársfjórðungi 2007 var fjöldi vinnustunda 41,6 klst., 47,1 klst. hjá körlum en 34,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,4 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,3 klst.
Tafla 1. Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi | ||||||
1. ársfjórðungur | ||||||
2005 | 2006 | 2007 | 2008 | |||
Atvinnuþátttaka | Hlutfallstölur | 79,8 | 81,1 | 82,2 | 81,0 | |
Hlutfall starfandi | Hlutfallstölur | 77,5 | 79,2 | 80,5 | 79,1 | |
Atvinnuleysi | Hlutfallstölur | 3,0 | 2,4 | 2,0 | 2,3 | |
Vinnuafl | Áætlaður fjöldi | 160.600 | 167.500 | 176.300 | 178.100 | |
Starfandi | Áætlaður fjöldi | 155.800 | 163.500 | 172.800 | 174.000 | |
Atvinnulausir | Áætlaður fjöldi | 4.800 | 4.000 | 3.500 | 4.200 | |
Starfandi í fullu starfi | Áætlaður fjöldi | 116.600 | 120.300 | 128.400 | 133.200 | |
Starfandi í hlutastarfi | Áætlaður fjöldi | 39.200 | 43.200 | 44.400 | 40.700 | |
Heildarvinnutími | Klukkustundir | 40,7 | 41,2 | 41,6 | 40,8 | |
Vinnutími í fullu starfi | Klukkustundir | 46,4 | 47,2 | 47,4 | 46,2 | |
Vinnutími í hlutastarfi | Klukkustundir | 22,9 | 23,8 | 23,3 | 22,0 | |
Utan vinnumarkaðar | Áætlaður fjöldi | 40.500 | 39.100 | 38.300 | 41.800 | |
Mannfjöldi | Áætlaður fjöldi | 201.100 | 206.600 | 214.600 | 220.000 |
Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Fyrsti ársfjórðungur 2008 nær til 13 vikna, frá 31. desember 2007 til 30. mars 2008. Heildarúrtakið var 3.928 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.832 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.085 einstaklingum sem jafngildir 80,5% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,3%, atvinnuleysi ± 0,6% og vinnutíma ± 1 klukkustund.