Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október er 365,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 347,7 stig og hækkar um 0,81% frá september.

Kostnaður vegna hitaveitu hækkaði um 23,5% (vísitöluáhrif 0,27%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,6% (0,13%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,9% (0,11%) og voru áhrif af  hækkun markaðsverðs 0,12% en af lækkun raunvaxta    -0,01%. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,7% (0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 4,0% verðbólgu á ári (4,9% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2010, sem er 365,3 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.213 stig fyrir desember 2010.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2009–2010
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2009
Október 353,6 1,1 14,6 10,2 10,8 9,7
Nóvember 356,2 0,7 9,2 11,2 9,9 8,6
Desember 357,9 0,5 5,9 9,8 7,9 7,5
2010
Janúar 356,8 -0,3 -3,6 3,7 6,9 6,6
Febrúar 360,9 1,1 14,7 5,4 8,2 7,3
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3
Maí 365,3 0,4 5,1 5,0 5,2 7,5
Júní 364,1 -0,3 -3,9 1,3 3,5 5,7
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3


Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  September Október %
Vísitala neysluverðs 203,2 204,7 3,3 3,3
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 179,1 180,5 2,9 0,4
Búvörur og grænmeti 162,4 164,7 1,7 0,1
Innlendar vörur án búvöru 192,5 192,9 3,8 0,3
Innfluttar vörur alls 184,6 184,6 3,7 1,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  178,1 178,2 3,4 1,2
Dagvara 182,7 183,4 1,2 0,2

Talnaefni