Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 362,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,55% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,0 stig og hækkaði hún um 1,05% frá febrúar.
Vetrarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% (vísitöluáhrif 0,41%). Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,1% (0,22%).
Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,0% (-0,25%). Þar af voru -0,2% áhrif af lækkun markaðsverðs og 0,05% vegna lækkunar raunvaxta.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,7% verðbólgu á ári (10,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2010, sem er 362,9 stig gildir til verðtryggingar í maí 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.165 stig fyrir maí 2010.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Febrúar | Mars | % | ||
Vísitala neysluverðs | 202,2 | 203,3 | 8,5 | 8,5 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 179,1 | 179,6 | 7,8 | 1,0 |
Búvörur og grænmeti | 164,7 | 164,5 | 1,8 | 0,1 |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 190,4 | 191,4 | 12,9 | 0,9 |
Innfluttar vörur alls | 185,0 | 188,2 | 17,1 | 6,4 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 178,5 | 181,8 | 16,8 | 5,7 |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 202,2 | 203,1 | 7,4 | 6,6 |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 205,3 | 206,4 | 7,5 | 6,2 |
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) | 204,4 | 205,6 | 8,3 | 6,7 |
Dagvara | 184,4 | 184,3 | 7,2 | 1,3 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2009–2010 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2009 | ||||||
Mars | 334,5 | -0,6 | -6,9 | 1,9 | 12,4 | 15,2 |
Apríl | 336,0 | 0,4 | 5,5 | 1,4 | 8,7 | 11,9 |
Maí | 339,8 | 1,1 | 14,4 | 4,0 | 7,4 | 11,6 |
Júní | 344,5 | 1,4 | 17,9 | 12,5 | 7,1 | 12,2 |
Júlí | 345,1 | 0,2 | 2,1 | 11,3 | 6,2 | 11,3 |
Ágúst | 346,9 | 0,5 | 6,4 | 8,6 | 6,3 | 10,9 |
September | 349,6 | 0,8 | 9,8 | 6,1 | 9,2 | 10,8 |
Október | 353,6 | 1,1 | 14,6 | 10,2 | 10,8 | 9,7 |
Nóvember | 356,2 | 0,7 | 9,2 | 11,2 | 9,9 | 8,6 |
Desember | 357,9 | 0,5 | 5,9 | 9,8 | 7,9 | 7,5 |
2010 | ||||||
Janúar | 356,8 | -0,3 | -3,6 | 3,7 | 6,9 | 6,6 |
Febrúar | 360,9 | 1,1 | 14,7 | 5,4 | 8,2 | 7,3 |
Mars | 362,9 | 0,6 | 6,9 | 5,7 | 7,8 | 8,5 |
Talnaefni