Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2010 er 356,8 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,31% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 337,9 stig og hækkaði hún um 0,03% frá desember.

Vetrarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif -0,63%) og verð á húsgögnum, heimilistækjum o.fl. lækkaði um 3,8% (-0,31%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,9% (-0,37%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,33% en af lækkun raunvaxta -0,04%. Þá lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 21,3% (-0,21%).

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 5,7% (0,28%) og verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,3% (0,22%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,0% (0,14%). Þá hækkaði verð á rafmagni og hita um 4,3% (0,11%).

Vísitala neysluverðs á fastskattagrunni (virðisaukaskatti, áfengis- og tóbaksgjaldi, olíugjaldi og orkusköttum á rafmagn og heitt vatn haldið föstum miðað við desember 2009) lækkaði um 1,05% frá fyrra mánuði.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,7% verðbólgu á ári (6,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2010, sem er 356,8 stig gildir til verðtryggingar í mars 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.045 stig fyrir mars 2010.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2009–2010
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6
Mars 334,5 -0,6 -6,9 1,9 12,4 15,2
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6
Júní 344,5 1,4 17,9 12,5 7,1 12,2
Júlí 345,1 0,2 2,1 11,3 6,2 11,3
Ágúst 346,9 0,5 6,4 8,6 6,3 10,9
September 349,6 0,8 9,8 6,1 9,2 10,8
Október 353,6 1,1 14,6 10,2 10,8 9,7
Nóvember 356,2 0,7 9,2 11,2 9,9 8,6
Desember 357,9 0,5 5,9 9,8 7,9 7,5
2010
Janúar 356,8 -0,3 -3,6 3,7 6,9 6,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009 - 2010
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 200,5 199,9 6,6 6,6
Þar af:
Innlendar vörur 176,4 177,8 6,3 0,8
Búvörur og grænmeti 161,9 163,6 -0,1 0,0
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 187,8 188,9 11,6 0,8
Innfluttar vörur alls 182,9 181,7 15,1 5,5
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  177,2 174,9 14,6 4,9
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 201,3 199,8 5,9 5,2
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 205,0 202,8 5,9 4,8
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 203,9 201,8 6,7 5,4
Dagvara 181,9 183,7 6,8 1,2

Talnaefni