Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember er 366,7 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,33% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 349,5 stig og hækkar um 0,43% frá nóvember.

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 4,0% (vísitöluáhrif 0,22%), Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,5% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% sem jafngildir 4,6% verðbólgu á ári (5,4% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2010 var 363,2 stig, 5,4% hærri en meðalvísitalan 2009. Samsvarandi breyting var 12,0% árið 2009 og 12,4% árið 2008.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2010 var 345,5 stig, 7,5% hærri en meðalvísitalan 2009. Samsvarandi breyting var 16,1% árið 2009 og 12,2% árið 2008.

Í janúar 2011 mun Hagstofa Íslands breyta aðferð við útreikning á útvarpsgjaldi í vísitölu neysluverðs. Nánari lýsingu á því er að finna í minnisblaði sem fylgir hér.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2010, sem er 366,7 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.240 stig fyrir febrúar 2011.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 204,8 205,5 2,5 2,5
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 180,1 180,9 2,5 0,4
Búvörur og grænmeti 164,8 165,8 2,4 0,1
Innlendar vörur án búvöru 192,3 192,8 2,7 0,2
Innfluttar vörur alls 185,2 186,0 1,7 0,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  178,7 179,6 1,3 0,5
Dagvara 182,6 182,8 0,5 0,1

Breytingar vísitölu neysluverðs 2009–2010
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2009
Desember 357,9 0,5 5,9 9,8 7,9 7,5
2010
Janúar 356,8 -0,3 -3,6 3,7 6,9 6,6
Febrúar 360,9 1,1 14,7 5,4 8,2 7,3
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3
Maí 365,3 0,4 5,1 5,0 5,2 7,5
Júní 364,1 -0,3 -3,9 1,3 3,5 5,7
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5

Talnaefni