Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 395,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,05% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 375,9 stig og hækkaði um 1,29% frá febrúar.

Vetrarútsölum fataverslana er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% (vísitöluáhrif 0,35%). Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 5,1% (0,31%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 14,1% (0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% og vísitalan án húsnæðis um 6,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,4% sem jafngildir 9,8% verðbólgu á ári (11,6% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2012, sem er 395,1 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.801 stig fyrir maí 2012.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2011–2012
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Febrúar Mars %
Vísitala neysluverðs 219,0 221,4 6,4 6,4
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 195,6 197,0 7,1 1,0
Búvörur og grænmeti 181,8 183,3 8,2 0,5
Innlendar vörur án búvöru 206,1 207,4 6,3 0,5
Innfluttar vörur alls 196,1 199,3 4,9 1,9
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  188,8 192,2 4,9 1,7
Dagvara 195,7 196,1 5,3 0,9

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011
Mars 371,2 1,0 12,0 5,0 4,8 2,3
Apríl 374,1 0,8 9,8 12,3 4,9 2,8
Maí 377,6 0,9 11,8 11,2 6,7 3,4
Júní 379,5 0,5 6,2 9,2 7,1 4,2
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0
Ágúst 380,9 0,3 3,2 3,5 7,3 5,0
September 383,3 0,6 7,8 4,1 6,6 5,7
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4

Talnaefni