Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2012 er 399,6 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,76% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 380,3 stig og hækkaði um 0,98% frá ágúst.

Sumarútsölur eru um garð gengnar og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,3% (vísitöluáhrif 0,28%). Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,9% (0,23%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 9,5% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitalan án húsnæðis um 4,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,1% sem jafngildir 0,5% verðhjöðnun á ári (0,4% verðhjöðnun á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2012, sem er 399,6 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.890 stig fyrir nóvember 2012.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Ágúst  September %
Vísitala neysluverðs 222,2 223,9 4,3 4,3
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 201,5 201,5 4,6 0,6
Búvörur og grænmeti 190,1 189,0 5,6 0,3
Innlendar vörur án búvöru 209,6 210,7 3,6 0,3
Innfluttar vörur alls 197,1 199,7 3,2 1,2
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  189,8 192,5 3,1 1,1
Dagvara 199,8 200,0 3,9 0,7

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011
September 383,3 0,6 7,8 4,1 6,6 5,7
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3


Talnaefni