Heildarlaunakostnaður á greidda stund lækkaði frá fyrri ársfjórðungi um 0,5% í iðnaði og 0,4% í byggingarstarfsemi. Þá hækkaði heildarlaunakostnaður um 0,8% í samgöngum og 2,3% í verslun.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 4,4% í verslun, 4,3% í samgöngum, 2,6% í iðnaði og um 2,5% í byggingarstarfsemi. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2012 var á bilinu 4,0% til 8,3%. Mest var hækkunin í samgöngum en minnst í byggingarstarfsemi. Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna jókst mest í verslun milli ára um 6,5% og minnst var aukningin í iðnaði og byggingarstarfsemi eða 4,4%.

 

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda vinnustund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.

 

Talnaefni