Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 0,9% í maí 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar um 432.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 428.000 á sama tíma árið 2025.
Mest fjölgaði gistinóttum á Suðurlandi eða um 15,2%. Þá var 6,3% aukning í fjölda gistinátta á Norðurlandi. Í öðrum landshlutum fækkaði gistinóttum og það mest á Vesturlandi og Vestfjörðum (-15,8%). Á Suðurnesjum dróst fjöldinn saman um 6,0% en þá var einnig fækkun um 3,3% á Austurlandi og 3,2% á höfuðborgarsvæðinu. Á fyrstu fimm mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum nær óbreyttur miðað við sömu mánuði árið 2025 þar sem aðeins 0,5% aukning var á milli ára.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 377.000, eða 87% af gistinóttum hótela, og var það 1,8% fjölgun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 55.000 sem var 4,4% minna en í maí árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 125 þúsund og fækkaði þeim um 2,5% á milli ára. Þá fækkaði gistinóttum Breta (26 þúsund) um 12,7%. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Þjóðverja (44 þúsund) um 13,5% og Frakka (22 þúsund) um 11,4%. Loks var einnig áframhaldandi aukning á fjölda gistinátta Kínverja (18 þúsund) eða um 40,4%.
Framboð hótelherbergja jókst um 2,1% á landinu í maí. Mest jókst framboð herbergja á Suðurlandi eða um 13,4%. Lítils háttar aukning var á höfuðborgarsvæðinu (0,8%) en í öðrum landshlutum fækkaði herbergjum. Þannig dróst framboð saman á Vesturlandi og Vestfjörðum um 7,0%, 5,4% á Suðurnesjum, 2,5% á Norðurlandi og 0,9% á Austurlandi. Alls var 181 hótel starfandi í maí 2026 með 12.532 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 178 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.667 herbergi og 54 á Suðurlandi með 3.197 herbergi.
Herbergjanýting dróst saman um 1,3 prósentustig á landinu í heild og var minnkun í öllum landshlutum nema á Norðurlandi þar sem nýtingin jókst um 4,7 prósentustig. Á Vesturlandi og Vestfjörðum dróst nýting herbergja mest saman eða um 5,3 prósentustig. Á höfuðborgarsvæðinu var samdrátturinn 2,5 prósentustig, á Austurlandi 1,5 prósentustig, 1,1 prósentustig á Suðurnesjum og 0,7 prósentustig á Suðurlandi. Í maí var mesta nýtingin á Suðurnesjum (67,1%) og því næst á höfuðborgarsvæðinu (66,6%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í maí rúmlega 713.000. Þetta var 1,9% lækkun miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 727.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 544.000 (rúmlega 432.000 á hótelum og rúmlega 111.000 á gistiheimilum) en tæplega 170.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Samhliða birtingu á gistináttatölum fyrir maí 2026 hafa veftöflur verið uppfærðar með nýjum og endanlegum gögnum fyrir árið 2025 fyrir hótel og gistiheimili samanlagt, aðrar tegundir gististaða (tjaldsvæði og aðrir) og allar tegundir gististaða samanlagt.
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í maí 2026 eru bráðabirgðatölur.