ÍSAT2008 — Íslensk atvinnugreinaflokkun


  • Flokkunarkerfi
  • 25. mars 2009
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Hinn 1. janúar 2008 tók gildi ný atvinnugreinaflokkun á Íslandi, ÍSAT2008. Flokkunin er byggð á nýrri atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE Rev. 2, sem gildir í öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.

Atvinnugreinaflokkun er meðal mikilvægustu flokkunarkerfa í hagskýrslugerð, en samræmt flokkunarkerfi tryggir samanburðarhæfni á hagstærðum atvinnulífsins milli þjóða. ÍSAT2008 er nú beitt í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og í opinberri hagskýrslugerð af Hagstofu Íslands. Öllum lögskráðum félögum og einstaklingum í atvinnurekstri ber að hafa skráða starfsemi samkvæmt ÍSAT2008 í fyrirtækjaskrá.

ÍSAT2008 leysir af hólmi ÍSAT95-flokkunarkerfið frá árinu 1995.

Til baka