Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2019, er 472,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,36% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 402,9 stig og hækkar um 0,22% frá september 2019.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,0% (áhrif á vísitöluna 0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2019, sem er 472,2 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.324 stig fyrir desember 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2
September470,50,11,00,62,23,0
Október472,20,44,42,92,22,8

Hagstofan hefur endurskoðað vogir fyrir meðalvexti sem notaðir eru við útreikning á reiknaðri leigu fyrir búsetu í eigin húsnæði. Þetta er í samræmi við tilkynningu í frétt sem fylgdi útgáfu vísitölu neysluverðs 27. september 2019.

Með endurskoðuninni eru vogir fyrir vaxtaflokka lánastofnana og eigið fjárframlag uppfærðar. Endurskoðun voga hefur sem slík ekki áhrif til verðbreytingar á vísitölu neysluverðs, heldur er vogum haldið föstum í verðsamanburði milli mánaða. Vogir eru endurskoðaðar til að endurspegla betur raunverulega samsetningu.

Talnaefni