FRÉTT VERÐLAG 26. MARS 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2024, er 620,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,80% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 504,4 stig og hækkar um 0,48% frá febrúar 2024.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,1% (áhrif á vísitöluna 0,40%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 9,9% (0,16%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2024, sem er 620,3 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2024.

Aðferð húsaleiguígilda tekin upp frá og með júní
Hagstofa Íslands hefur um nokkurt skeið unnið að endurskoðun aðferða við mat á reiknaðri húsaleigu í vísitölu neysluverðs. Frá og með júní næstkomandi verður aðferð húsaleiguígilda notuð við útreikning á reiknaðri húsaleigu í vísitölu neysluverðs og munu niðurstöður sem birtar verða 27. júní 2024 því byggja á þeirri aðferð. Tengil á greinargerð um nýja aðferðina er að finna í lok fréttarinnar.




Húsnæðisliður í vísitölu neysluverðs – Innleiðing á nýrri aðferðafræði: Greinargerð

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.